Sólblómaolíusamráð
Bresk vinkona húsmóðurinnar hefur nýhafið störf í litlu fyrirtæki sem útbýr hádegissnarl fyrir vinnandi fólk. Mikið er lagt uppúr því að allt hráefni sé lífrænt ræktað og útbúið á sem heilnæmastan og umhverfisvænstan hátt. Gengur forstýra fyrirtækisins svo langt í umhverfisvænleika sínum að hún er nú að íhuga breytinar á sendiferðabíl fyrirtækisins í þá átt að hann gangi fyrir sólblómaolíu. Uppúr þessu hafa sprottið miklar umræður, m.a. um það hvort hún komist þá undan því að greiða eldsneytisskatt og hvort að eiturgufur myndist síður við bruna sólblómaolíu. Að sögn kunnugra skilar bruni sólblómaolíu u.þ.b. jafn miklu magni af koltvísýringi út í andrúmsloftið og blómin sem olían er unnin úr tóku upp þegar þau voru enn með annan endan fastan við jörðu. Spurningunni með skattinn er enn ósvarað.
Ég sagði henni að fá sér bara vetnisbíl en það er víst mun ódýrara að breyta bílnum en að kaupa háþróaðan vetnisbíl - svo skilst mér að hægt sé að nota olíu sem þegar hefur verið notuð til að steikja fisk og franskar og því nóg af afgangsolíu að hafa frá beskum skyndibitastöðum. Get samt ekki alveg ímyndað mér að ganga um í umferðarútblæstri sem angar af gamalli steikarolíu. Ojbjakk!

3 sagt:
Alveg sammála húsmóðurinni í Austurbænum um steikarolíuútblástur - ekki beint freistandi tilhugsun. Vona að maddaman fái sér bara vetnisbíl.
en af hverju sólblómaolíu??? á ólífuolía ekki að vera svo miklu fínni?
grunar að það sé til að endurvinna - meira framboð af sólblómaolíu. það að vera umhverfisvænn snýst víst ekki um að vera fínn.
Skrifa ummæli
<< Home