laugardagur, júní 18, 2005

Sól, sumar, svefnleysi og kaffi

Húsmóðirin var frekar ósofin á þjóðhátíðardaginn. Aldrei þessu vant var það ekki litlu prinsessunni að kenna, hún svaf eins og engill alla nóttina. Ástæðan var sú að við hjónakornin lentum á kjaftatörn uppi í rúmi eftir að ljósin voru slökkt og blöðruðum alveg fram á rauða nótt. Svefnleysi af þessum sökum er þó ánægjulegt og húsmóðurinni finnst allt í lagi að vera ósofin annað slagið ef ástæðan er sú að eiginmaðurinn er svo skemmtilegur að ekki er hægt að hætta að tala við hann. Þegar staðan er svona er engin ástæða til að fara með lokaorðin úr síðasta þætti af aðþrengdum eiginkonum.
Annars hóstar öll fjölskyldan í kór og ekki mikil afgangsorka til athafna. Við reynum því að flatmaga eins og við getum - eru ekki langar helgar annars til þess?
ps. Kaffiþyrstir athugið! Í eldhúsi húsmóðurinnar má nú finna forláta Saeco Incanto Sirius alsjálfvirka kaffikönnu. Vinir og vandamenn velkomnir í tíu dropa!