föstudagur, júní 10, 2005

Saumó

Húsmóðirin er að sjálfsögðu í saumaklúbbi eins og allar almennilegar konur á Íslandi. Í klúbbnum eru bekkjasystur úr Verzló og höfum við reynt að hittast nokkuð reglulega í þau 11 ár síðan við settum upp hvítu kollana. Útþrá í hópnum hefur verið nokkuð ríkjandi og var því ánægjulegt hve góð mæting var í gærkvöldi en það vantaði aðeins tvær konur en báðar eru þær staddar erlendis - önnur í Danmörku en hin í Noregi. Ein úr hópnum var nýlent eftir veturdvöl á Flórída þar sem hún var í framhaldsnámi, önnur í stuttri heimsókn en hún er búsett í Kaliforníu, sú þriðja rétt ófarin til New York fylkis þar sem hún ætlar að vinna en maðurinn hennar (sem reyndar var líka með okkur í bekk) er á leiðinni í framhaldsnám í barnalækningum og sú fjórða á leiðinni til Iowa í því skyni að hefja tilraunabúsetu með bandarískum kærasta sem hún fann í Egyptalandi í vetur.
Sú stutta var með húsmóðurinni í för enda þykir nokkuð merkilegt að stúlka skuli fæðast í saumaklúbbshópnum. Fram að fæðingu hennar hafði saumaklúbbskonum aðeins tekist að geta af sér drengi. Staðan er því 8-1. Svo er aldrei að vita hvað bætist við en á tímabili var það regla að sú sem hélt klúbbinn í hvert skipti var annaðhvort nýorðin ólétt eða um það bil að verða ólétt. Það verður spennandi að sjá hvort sú regla er enn í gildi ;)