mánudagur, október 24, 2005

Rauðir sokkar

Húsmóðirin skartaði rauðum sokkum í dag. Í þessum sokkum arkaði hún niður í miðbæ og dró með sér móður sína, kasólétta systur og tvö börn. Það var voða gaman og mikil stemmning en svo varð hyski húsmóðurinnar kalt og þá var ekið sem leið lá austur í bæ með viðkomu hjá Jóa Fel. Hyskið ornaði sér svo við kaffi og meðí. Það var fínt að vera í rauðum sokkum í dag.

3 sagt:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Rauðsokka!

24/10/05 23:38  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hæ!Ég komst upp með að vera alveg við sviðið allan tímann því þótt kvennaherinn næði víst upp í Ártúnsbrekku var alveg NÓG pláss á sjálfu Ingólfstorgi! Klukkan 17.00 sótti ég Skírni og kom síðan bara aftur og fann gamla plássið mitt svo við misstum ekki af Steinunni og öllum hinum að syngja Áfram stelpur! Þetta var svei mér gaman!

25/10/05 09:27  
Blogger hdb sagði...

Já, maður hefði bara átt að koma vestan megin að Ingólfstorginu. Svona er að búa í Austurbænum.

25/10/05 10:05  

Skrifa ummæli

<< Home