Annir á sængurkvennadeild
Húsmóðirin fór í gær að sjá nýjustu fjölskyldumeðlimina sem um þessar mundir dveljast á sængurkvennadeild LSH. Um er að ræða tvö stúlkubörn sem eru óskaplega yndisleg en alveg pínupons miðað við engilinn sem leikur sér þessa stundina við fætur húsmóðurinnar. Húsmóðurinni finnst sem það hafi verið í síðustu viku sem hún lá þar sjálf en þegar dagatalið er skoðað sýnir það að átta mánuðir eru liðnir. Úff, hvað tíminn líður hratt.
Heimsókninn kenndi húsmóðurinni þó eitt. Það er alveg spurning hvort ekki þurfi að endurskoða fengitímann innan krílafjölskyldunnar því það var svo rólegt á sængurkvennadeildinni ólíkt því sem var í þau tvö skipti sem húsmóðirin hefur dvalið þar með sín börn. Janúar og febrúar eru greinilega alltof vinsæll tími til að eiga börn. Reyndar er húsmóðirin á því að það sé mjög gott að eiga börn á þeim tíma árs þegar farið er að styttast í vorið og börnin orðin sæmilega stálpuð að sumri. Það er þó alveg ljóst að ef húsmóðirin fer út í þetta djobb í þriðja skiptið og ætlast til þess að fá góðan frið og jafnvel einkastofu á sængurkvennadeild þá verður að endurskoða fengitímann.

4 sagt:
Hefurðu ekkert að gera, kella mín???
Svo eru sumir sem yrðu þakklátir fyrir fengitíma hvenær ársins sem er!!!
Jamm, maður ætti kannski bara að þegja og vera þakklátur fyrir að eiga þessi tvö fullkomnu börn.
Nei, nei, aldrei að vera svo þakklátur að slái á mann þögn. Það væri einfaldlega uppgjöf gegn gæsku heimsins. Heldur að taka sér blogg í hönd og tjá sig.
Skrifa ummæli
<< Home