mánudagur, október 10, 2005

Húsmóðurangur

Það er tvennt sem angrar húsmóðurina þessa dagana. Annað er fyrir framan stofugluggann en hitt utan við svefnherbergisgluggann.

Stofugluggaangrið felst í þeirri ákvörðun skólayfirvalda á leitinu að banna reykingar á skólalóðinni. Slíkt er gott og blessað svo langt sem það nær en þetta bann hefur orðið til þess að blessuð börnin hanga úti við vegg íþróttahússins og púa þar sem þau eru í skjóli fyrir árvökulu auga húsvarðarins. Einhverstaðar verða þessi grey sennilega að vera en þessi staðsetning fer afskaplega í taugarnar á húsmóðurinni þar sem að reykjarstybbuna leggur beint upp að stofuglugganum og svölunum þar sem barnið sefur í sakleysi sínu. Það er alveg tímaspursmál hvenær húsmóðirin lætur verða að því að kvarta við skólayfirvöld yfir þessu.

Svefnherbergisgluggaangrið helgast af bifreiðaeign nýrra nágranna. Lágt gengi dollars hefur algerlega farið með alla skynsemi nágrannans lönd og leið. Risavaxinn pallbíll er nú ræstur snemma morguns hvort sem dagurinn tilheyrir helgi eður ei og eru drunurnar slíkar að húsmóðirin hélt fyrstu dagana að sorphirðudeild Reykjavíkurborgar væri farin að veita daglega þjónustu. Ef svo notalega vill til að húsmóðirin er sofandi kl. 07.00 á sunnudagsmorgni (sem gerist æ sjaldnar) þá er alveg víst að granninn góði vekur hana þegar tryllitækinu er startað.

Húsmóðirin hefur komist að því að það er vandlifað í nýja miðbænum.

4 sagt:

Blogger Ragnheidur sagði...

Úff ... það eru einmitt svona hlutir sem geta farið alveg óstjórnlega í taugarnar á manni. Ekki síst vegna þess að maður getur ekki með góðu móti haft áhrif á þá.

10/10/05 13:33  
Blogger inga hanna sagði...

ég held að eina ráðið sé að láta eins og maður heyri ekki og sjái ekki. þetta er ekki geðheilsunnar virði.

10/10/05 17:51  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Það er búið að skipta út geðsjúklingnum sem sat við stjórnvölinn í skólanum þarna á móti, nýji maðurinn er vænsti maður og tekur örugglega vel í ef hann fær kvartanir frá nágrönnum skólans.

10/10/05 18:10  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hver hefur sinn djöful að draga!

13/10/05 16:24  

Skrifa ummæli

<< Home