Andleysi
Bloggleti húsmóðurinnar má undanfarið skrifa að miklu leyti á andleysi. Nokkrum sinnum hefur hún setið við tölvuna, alveg í blogggírnum en ekki fundist neitt þess virði að skrifa það niður. Staðan í dag er eiginlega alveg nákvæmlega þannig nema húsmóðirin ákvað í stað þess að láta andleysið koma í veg fyrir að hún skrifaði að skrifa um andleysið. Svo er allt annar handleggur hvort einhver hefur áhuga á að lesa um meint húsmóðurandleysi...
Andleysið snýr reyndar að fleiru en bara bloggskrifum. Rykið safnast upp í hornum, þvotturinn er ýmist óhreinn í körfunni eða ósamanbrotinn (stjörnulögfræðingurinn hefur hent í nokkrar vélar undanfarið), líkamsræktarkortið er ónotað og djúp rassaför farin að myndast í sófanum. Andleysið rauk þó upp úr öllu valdi fyrr í dag þegar húsmóðirin nennti ekki að klára sudoku þrautina í Mogganum sem hún hefur þó haft fyrir að leysa alla daga síðustu viku (bara þá erfiðistu, hitt er bara tímaeyðsla).
Spurning hvort sólin úti gefi tilefni til að rífa húsmóðurrassinn upp úr sófanum og fara kannski að gera eitthvað sem ekki er gert í gegnum tölvu eða sjónvarp. Fylgist með, aldrei að vita nema húsmóðurbloggið taki við sér ef tekið verður á andleysisvandanum.

3 sagt:
Kannski er húsmóðirin bara á fullu í ritgerðarhugleiðingum og það bitnar á sudoku og bloggi!
Ég skil þetta ósköp vel. Þegar búið er að gifta sig, kaupa íbúð og koma tveimur börnum í heiminn þá virðist fátt vera eftir!!! Kannski þess vegna sem ég bætti við því þriðja?! Húsmæður hafa fullan rétt á því að leggjast stundum í leti í sófanum. You go girl!
Þegar sudoku situr á hakanum ertu illa haldin.
Skrifa ummæli
<< Home