föstudagur, október 28, 2005

Skynsemisröddin

Húsmóðurinni fannst um tíma í dag sem hún væri eldgömul og afdönkuð, alltaf tuðandi yfir öllu og neikvæð gagnvart hverju því sem kastað er fram. Kom þá ekki ungur riddari henni til bjargar, sagðist sammála gagnrýni hennar og gerði húsmóðurinni ljóst að hún er ekki gömul heldur skynsöm.

5 sagt:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Nákvæmlega. Er þetta ekki einmitt það sem við erum að upplifa þegar við finnum mömmur okkar skína í gegnum okkur. Eitthvað voru kellurnar nú skynsamar og gáfaðar víst að þetta endurspeglast í okkur þó svo að þetta hafi allt hljómað sem eintómt tuð á sínum tíma en slær okkur sem eintóm skynsemi í dag. Eða hvað? OH MAMMA!!

28/10/05 23:29  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hver er þessi ungi riddari? Er það stjörnulögfræðingurinn eða? Ég vil vita meira.

31/10/05 01:01  
Blogger hdb sagði...

Meðstjórnarmaður í félagslífi húsmóðurinnar. Þú verður bara að koma í kaffi til að fá nánari skýringar.

31/10/05 10:27  
Blogger inga hanna sagði...

Sko, þú þarft nú ekki riddara til að segja þér það sem segir sig sjálft!

1/11/05 09:47  
Blogger hdb sagði...

Stundum þarf maður bara að heyra það upphátt til að vita að það er satt !

1/11/05 12:14  

Skrifa ummæli

<< Home