Kúkandi ávextir
Húsmóðirin brá undir sig betri fætinum í gær og fór með drenginn að sjá Ávaxtakörfuna. Sýningin var alveg hreint hin ágætasta skemmtun en eitthvað var tæknin að stríða ávöxtunum því ýmist heyrðist lítið í þeim eða þá að brakaði ógurlega í hljóðnemunum. Húsmóðurinni þótti samt gaman að sjá gamla félaga sem hún stóð á sviði með á öndverðum þrítugsaldrinum slá í gegn sem jarðarber og grænn, lífrænt ræktaður banani. Gömul skólasystir stóð sig mjög vel í hlutverki Evu appelsínu og uppskar mikið klapp og hlátur. Það skyldi þó aldrei vera að leikhæfileikarnir séu að brjótast fram þar???
Sorglegastar þóttu húsmóðurinni þó tilraunir til fyndni með kúkabröndurum sem urðu í heildina þrír - og voru allir mjög ófyndnir, meira að segja börnin hlógu ekki að þeim. Drengurinn hneykslaðist bara á því að bananinn þyrfti alltaf að vera að kúka en hló ekki. Það er nefnilega margt fyndnara en að kúka - þessu þurfa fullorðnir að átta sig á. Húsmóðirin skilur heldur ekki rökfærsluna á bak við það að láta ávexti kúka - það vita það allir að það eru bara dýrin sem ganga örna sinna! Hitt er svo annað mál að ávextir geta heldur ekki sungið og dansað - en það er allt önnur Ella!

2 sagt:
Held það sé nú líka ánægjulegra að sjá ávexti syngja og dansa en kúka.
Það fyrsta sem mér datt í hug er að ávextir eru yfirleitt mjög örvandi og góðir fyrir meltinguna!!! Og svo er gott að fá sér banana áður en maður syngur, mýkjandi fyrir hálsinn. Þannig að óbeint tengist þetta söng og kú...
Skrifa ummæli
<< Home