miðvikudagur, október 26, 2005

Kvenfélagsfundur

Kvenfélagið hittist í gærkvöld og snæddi dýrindis mat á heimili einnar kvenfélagskonu. Mikið sem húsmóðirin var lukkuleg með matinn og umræðuna um utanlandsferðina sem áætlað er að kvenfélagið leggi í að hausti 2006. Þá verður nú mikið verslað, etið og hlegið. Eitt er víst að húsmóðirin er með harðsperrur í maganum eftir hláturinn í gær og er það ekki fyrsta skipti sem slíkt gerist daginn eftir kvenfélagsfund. Mikið sem það er nú gaman að eiga skemmtilegar vinkonur.

3 sagt:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Hvert ætlið þið að skella ykkur?

27/10/05 13:12  
Blogger hdb sagði...

Það á nú bara alveg eftir að koma í ljós...

27/10/05 14:32  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Já það þarf ekki mikið til að kvennfélagið byrji að hlæja en alltaf líður manni jafn vel á eftir. Ég stóð mig einmitt að því daginn eftir í vinnunni að segja "nebbi" við eldri mann sem var hjá mér í meðferð og átti erfitt með að halda niðri í mér hlátrinum þegar mér var hugsað til aðhlátursefnisins kvöldið áður. Sá gamli tók ekki eftir neinu og fannst þetta hið eðlilegasta mál!!!

28/10/05 23:25  

Skrifa ummæli

<< Home