mánudagur, október 23, 2006

Útskrifuð

Þá er það búið. Húsmóðirin er útskrifuð - orðin magister eins og montna fólkið í Laxness bókunum. Útskriftardagurinn var frábær. Hátíðleg athöfn og drengnum tókst að vinka mömmu sinni þegar hún hafði tekið í höndinni á rektor. Rektor sem, nota bene, skartaði rauðum skóm. Húsmóðurinni fannst það töff.
Og nú er bara að bíða eftir því að atvinnurekendur fari að bítast um starfskrafta húsmóðurinnar. Ætli þurfi ekki bara að breyta bloggtitlinum?

1 sagt:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með áfangann og klippinguna ;) Sé drenginn fyrir mér svaka montinn að vinka móður sinni.

Varðandi rauðu skóna: Þetta var ekkert þessi þarna The Devil Wears Prada, var nokkuð?

24/10/06 09:16  

Skrifa ummæli

<< Home