Fyrir 20 árum
... sat húsmóðirin í Grjótaþorpinu eftir skóla og drakk pepsí og át snakk. Þar var búið að koma fyrir litlu svart/hvítu sjónvarpi og myndir af leiðtogafundinum bárust í gegnum það inn á kosningaskrifstofuna. Ættmóðirin hafði hins vegar engan tíma til að horfa á leiðtogafundinn. Hún var í prófkjöri - og mikið assgoti sem það var leiðinlegt. Húsmóðirin man þessa tíma nánast í svart/hvítu eins og leiðtogafundinn sjálfan og var hún gríðarlega fegin þegar í ljós koma að móðir hennar hafði ekki hlotið brautargengi innan Flokksins. Hæfni ættmóðurinnar var þó aldrei dregin í efa. Feginleikinn stafaði af því að þegar prófkjöri lauk endurheimti ellefu ára stúlka móður sína. Það er nefnilega svo gott að hafa mömmu hjá sér á kvöldin - í það minnsta betra en að geyma hana í Grjótaþorpinu.

0 sagt:
Skrifa ummæli
<< Home