Blandaðu meira...
... sagði ættmóðirin við húsmóðurina í morgun. Átti hún þá við ilmkjarnaolíublöndu sem húsmóðirin hefur verið að ota að móður sinni til að hrekja út skýkla. Eflaust dugar hún líka á illa anda. Ættmóðirin er mikil efasemdarmanneskja en í þetta skiptið hefur hún látið sér segjast og fær meira að segja doktorinn góða til að nudda á sér tærnar uppúr blöndunni göróttu. Hann sem sjaldan fæst í slíkt dekur. En húsmóðirin er semsagt farin að stunda svokallaða arómaþerapíu í hjáverkum. Vísa samt öllum stærri verkum á fagmenn ;)

1 sagt:
Ykkur viðskiptafræðingunum er greinilega margt til lista lagt ;)
Skrifa ummæli
<< Home