Svarbox
Húsmóðirin var að uppgötva svarbox - nýja þjónustu hjá Tollstjóranum í Reykjavík. Nú þarf ekki lengur að bíða í marga klukkutíma eftir þjónustufulltrúa í síma sem reynist síðan vera óalandi og óferjandi með enga þjónustulund. Nú notar maður bara svarbox og spjallar við þjónustufulltrúann á nokkurs konar msn. Kosturinn er að maður fær að klára það sem þarf að segja án þess að gripið sé fram í, starfsmaðurinn neyðist til að lesa það sem maður skrifar og getur ekki notað selektíva heyrn og allir eru sáttir. Frábær þjónusta hjá Tollstjóranum. Aldrei hefði húsmóðirin trúað því en það liggur við að hrópa þurfi húrra fyrir Tollstjóraembættinu.

2 sagt:
Ein spurning: Hvaða miklu samskipti eru þetta sem þú þarft að eiga við Tollstjórann? Er eitthvað sem við hin vitum ekki?
hihihi...
Skrifa ummæli
<< Home