miðvikudagur, október 18, 2006

Nonni

Húsmóðirin fór í klippingu í morgun sem er nú alveg í frásögur færandi þar sem húsmóðurhárið hefur ekki verið skert að neinu viti síðan á vormánuðum. Nú skartar húsmóðirin þessari líka fínu klippingu sem á að virka hvort sem krullurnar fá að ráða ríkjum eða þær barðar niður með hárblásara. Klippari húsmóðurinnar var hinn margumtalaði Nonni Quest. Reyndar hefur lítið borið á manninum undanfarið en þeir sem kannast við að hafa séð mann ganga um Kringluna til fara eins og fiðlarinn á þakinu þá er það einmitt Nonni. Í dag skartaði hann svörtu naglalakki svona til að fullkomna lúkkið. En drengurinn má eiga það að hann kann að klippa og er alls ekki eins furðulegur og hann lítur út fyrir að vera. Það er meira að segja alveg hægt að tala við hann. Húsmóðirin er allavega hæstánægð með klippinguna og vonast hún til að taka sig vel út á sviðinu í Háskólabíói á laugardaginn.