mánudagur, október 30, 2006

Húsmæðraorlof

Þá er húsmóðirin komin heim úr orlofinu í Kóngsins Köbenhavn. Ferðin var í einu orði sagt frábær. Guðdómlegur matur, flottar búðir og stórfenglegur félagsskapur. Kvenfélagskonur voru duglegar að "hygge sig" og komu 13 skópör heim með þeim. Húsmóðirin verður þó að viðurkenna að hún á aðeins eitt þeirra. Ýmislegt fleira var keypt og voru sumir með þyngri töskur en aðrir, nefnum engin nöfn. Kvenfélagskonur sluppu þó við að greiða yfirvigt.
Það verður að segjast eins og er að Kaupmannahöfn er alveg frábær borg og nú getur húsmóðirin ekki beðið eftir að komast þangað aftur og skoða allt það sem hún missti af í þessari ferð. Kannski þá verði reynt að vera aðeins minna í Illum.
Það segir kannski eitthvað um stemmninguna að á sunnudögum eru allar verslanir lokaðar í Kaupmannahöfn. Kvenfélagið fór því á kaffihús og hafði það notalegt þar um stund en svo var gengið eftir Strikinu niður á Kongens Nytorv. Á þeirri leið römbuðu frúrnar á einu búðina sem var opin og reyndist hún selja skó. Gengu þær allar inn og skömmu síðar út aftur, þrjár þeirra skóparinu ríkari. Þvílík hamingja sem felst í því að eiga nýja skó!

2 sagt:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Köben er náttúrlega bara æði gæði ;) Til hamingju með skóparið og velkomin heim.

31/10/06 00:22  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hvaða bloggleti er þetta eiginlega? Bush-gengið er búið að tapa, Demókratar komnir í meirihluta, Rumsfeld búinn að segja af sér og húsmóðirin í Austurbænum bloggar ekki neitt!!!

9/11/06 12:52  

Skrifa ummæli

<< Home