sunnudagur, júní 25, 2006

Afrek

Húsmóðirin vann afrek á föstudagskvöldið. Hljóp fimm kílómetra í Jónsmessunæturhlaupi og var ekki síðust í mark. Yeessssss....
En í fullri alvöru þá var þetta alveg magnað. Hver hefði trúað því að antisportistinn, húsmóðirin í austurbænum, myndi keppa í hlaupi. Tilfinningin var ólýsanleg þegar húsmóðirin hljóp í mark. Tvennt gerði tilfinninguna enn skemmtilegri, annarsvegar kom húsmóðirin í mark strax á eftir Mörthu Ernstdóttur (sem reyndar var búin að hlaupa 10 km ...) og svo var nafn húsmóðurinnar básúnað í gegnum gjallarhorn þegar hún nálgaðist markið. Gjallarhornsmaðurinn reyndist vera gamall skólabróðir sem ákvað að hvetja húsmóðurina síðustu metrana.
Og svo er bara að halda áfram að hlaupa - ætli húsmóðirin endi eins og Forrest Gump???

3 sagt:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Til hamingju með árangurinn. Ég ætla að vona að þú verðir jafn þolmikil og hann Forrest og takir í kjölfarið upp nafnið Helga Gumpur. Það er rótgróið íslenskt orð.

26/6/06 11:46  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Líst vel á Helga Gumpur; „Life is like a box of chocolate, you never know what you´re gonna get.“

26/6/06 15:51  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Vá! Til hamingju með afrekið. Það er svo gaman þegar maður kemur sjálfum sér á óvart.

26/6/06 22:25  

Skrifa ummæli

<< Home