Ömurlegasta mamma í heimi
Þá er það staðfest! Húsmóðirin er ömurlegasta mamma í heimi. Hún er alveg ömurleg að leyfa ekki drengnum að vera uppi á skiptiborði um leið og skipt er á stúlkunni. Alveg Ö-M-U-R-L-E-G!!! Aldrei má maður ekki neitt! Drengurinn var kominn hálfa leið út í Hagkaup til að athuga hvort ekki væri hægt að fá bara nýja mömmu sem væri ekki svona ömurleg. Episódinn endaði þó ágætlega og ömurlega mamman og drengurinn sættust á að vera vinir. Húsmóðirin þurfti reyndar að halda niðri í sér hlátrinum á meðan á þessu ömurlegheitamáli stóð - en um leið giskar hún á að þetta verði ekki í síðasta skipti sem hún fái þennan ægilega fína titil. Húsmóðrin hefur heldur aldrei verið mikið fyrir miðjumoð - best að vera bara ömurlegurst í heimi fyrst maður er eitthvað ömurlegur á annað borð...

1 sagt:
Unconditional love í hnotskurn!
Skrifa ummæli
<< Home