miðvikudagur, júní 14, 2006

Áfram Barca!!!

Húsmóðirin er hæstánægð með þær fréttir að Eiður Smári sé búinn að skrifa undir samning við Barcelona. Nú hefur hún ærna ástæðu til að draga stjörnulögfræðinginn til Spánar og á fótboltaleik. Alls ekki ólíklegt að Ramblan verði þá gengin nokkuð hressilega um leið og borgin tekin almennilega út. Í tilefni dagsins klæddist drengurinn Barca búningi frá toppi til táar. Nú mega fótboltastrákarnir í leikskólanum fara að vara sig. Svei mér þá ef Barca smekkurinn verður ekki notaður á prinsessuna í kvöld. Svei mér þá hvað húsmóðirin er ánægð með þetta. Svei mér þá...

2 sagt:

Blogger Ragnheidur sagði...

Ja svei mér þá ...

14/6/06 10:07  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Svo eftir allt saman þá ertu bara einhver fótboltabulla!

14/6/06 23:37  

Skrifa ummæli

<< Home