mánudagur, júní 12, 2006

Tilgangurinn með gapinu

Húsmóðirin hefur löngum furðað sig á undarlegum innanhússarkitektúr á baðherberginu á heimilinu. Sér í lagi hefur gap milli baðkars og sturtuklefa vakið furðu hennar en eini sjáanlegi tilgangurinn með þessu gapi hefur hingað til verið sá að safna skít. Síðastliðinn laugardag varð þó breyting á og gapið fékk allt í einu tilgang. Þar sem húsmóðirin lá í baði og slakaði á kom drengurinn inn á bað og óskaði eftir félagsskap móður sinnar. Eina leiðin til að gera gott úr ástandinu var að fela drengnum verkefni. Það varð því úr að drengurinn kom sér fyrir í gapinu margumtalaða og nuddaði hársvörð móður sinnar af mikilli list. Næst tók við hárnærinarmeðferð og að lokum fékk móðirin andlitsnudd með skrúbbkremi. Mitt í þessari dekurmeðferð áttaði húsmóðirin sig á því að ef gapið væri ekki til staðar hefði meðferðin ekki átt sér stað. Sennilegast er því að gapið hafi verið hannað með það í huga að fjögurra ára drengir gætu staðið við baðkarsendann og dekrað við mæður sínar. Hvort sem það er rétt eða ekki verður það með mun meiri gleði í hjarta sem húsmóðirin þrífur gapið næst.

2 sagt:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Værirðu til í að senda drenginn til Selfoss með allt þetta nudddót?! Það er að vísu ekki neitt gap hér en það er hægt að sitja uppi við endann á baðinu ;)

14/6/06 23:36  
Blogger hdb sagði...

Já, já, sendi hann bara með næstu rútu ;)

15/6/06 08:53  

Skrifa ummæli

<< Home