Um allt og ekkert
Húsmóðirin var að hugsa um að skrifa nokkur orð um fárið á fyrrum vinnustað hennar en komst að því að það yrði alltof löng færsla. Endalaust hægt að skrifa um vitleysuna sem á sér stað á þeim vinnustað. Ein spurning samt: Hvers konar kókópöffs MBA próf er það sem fólk er með sem stendur í þeirri trú að hægt sé að segja upp stjórnendum og láta þá vinna út uppsagnafrestinn án þess að það komi neikvætt út fyrir reksturinn? Hef nefnilega aldrei heyrt um svoleiðis en er kannski bara í röngum skóla.
Annars er húsmóðrin búin að komast að því að hún finnur ekkert ef hún er að leita að því. Hið dularfulla buff-hvarfs-mál var til lykta leitt í morgun þegar stjörnulögfræðingurinn ætlaði að fara að setja töskurnar inn í geymslu. Leyndist ekki buffið í einu af fjölmörgum hólfum sem húsmóðirin var búin að kemba. Er stjörnulögfræðingurinn grunaður um að hafa vísvitandi falið buffið til að þykjast finna það og virka voða fundvís. Já, það var örugglega þannig sem þetta gerðist. Ekki séns að buffið hafi farið framhjá húsmóðurinni. Svoleiðis gerist barasta ekki...

5 sagt:
hei, ég sem var einmitt að kaupa mér tvo kókópuffspakka!! Ætli ég fái þá doktorinn?
Þetta er svona eins og þegar Andri felur inniskóna mína bara til þess að geta gert grín að mér þegar ég geng um íbúðina tautandi ‹i›Hvar eru inniskórnir mínir?‹i›
Inga Hanna: Þú vilt ekki svoleiðs doktorspróf.
Ragnheiður: Nákvæmlega!
Stjörnulögfræðingur er nú svo meinfyndinn að ég gæti alveg trúað honum til að fela þetta fyrir þér.
Þessi fyrrum vinnustaður hefur náttúrlega ekki enn komist yfir það að þú - og síðar einkarithöfundurinn þinn - hættir þarna um árið þannig að það var ekki við öðru að búast en að þetta færi allt til helv...
Forstjórinn: ,,Já þú ert rekinn, en ég vona að þú hafir samt eldmóðinn í þér að reyna að bjarga blaðinu á meðan þú vinnur upp uppsagnarfrestinn svo við þurfum ekki að hætta með það."
Páll Brynjólfur: ,,Bless.."
- Arnór
Skrifa ummæli
<< Home