Hörföt í kulda og trekki
Karlkyns verslunarstjóri í fínni búð í Kringlunni er stundum að skottast í Odda. Er greinilega að bæta við kunnáttuna til að geta rekið fínu búðina ennþá betur. Miðvikudagar virðast vera hans lærdómsdagar og í morgun gekk hann stigann upp á þriðju hæð á undan húsmóðurinni. Þetta er nú varla í frásögur færandi nema hvað að maðurinn var klæddur í ljós hörjakkaföt. Og svona fyrir ykkur sem ekki vita það þá er strekkingsvindur og 0°C í Reykjavík í dag. Maður hebbdi nú haldið að maður sem lifir og hrærist í tískuheimi karla ætti að hafa meira "fashion sense" en svo að klæðast sumarfatnaði um hávetur. En svo bregðast krosstré sem önnur...

5 sagt:
Þetta þýðir aðeins eitt, það er komið vor í Mílanó. Sannar tískuspírur klæða sig eftir veðrinu þar. Þetta er eins og spjátrungarnir sem eiga litla sportbíla. Fyrst það eru engir snjóskaflar á strætum Ítalíu þá fara þeir nú ekki að taka tillit til slíks skiterís hér.
Hefði mátt vita að það mætti treysta á Gerði til að koma með lógíska útskýringu á þessu athæfi.
já en... sumartískan streymir í búðir - varstu ekki búin að fatta það?
Ekki gleyma því, Helga Dögg, að ég vann einu sinni "með" svona spíru og fékk þá ómetanlegt tækifæri til að rannsaka háttalag hennar sem væri ég David Attenborough og spíran af dularfullum skordýrastofni - sem hún og var.
Helga Dögg mín, skelltu þér nú bara í flottan sumarkjól næsta miðvikudag og vertu í stíl við manninn ;) Annars er ég hrifin af svona fólki sem fer eigin leiðir. Ég er t.d. allaf berfætt í þægilegu háhæluðu skónum þessa dagana og fólk hér á Selfossi starir á mig. Ég er greinilega að skapa eitthvað trend hérna því nú er nágrannakona mín búin að apa þetta háttarlag eftir mér. Vittu til, í næstu vika verða allir í Odda komnir í hör ;)
Skrifa ummæli
<< Home