laugardagur, mars 18, 2006

að vera ekki einhleyp

Húsmóðirin er glöð yfir því að vera ekki einhleyp. Undanfarna daga hefur stjörnulögfræðingurinn legið undir feldi og kveinkað sér undan hita, hálsbólgu og beinverkjum. Á sama tíma hefur sú stutta tekið upp á því að kasta upp annað slagið. Fyrir vikið fær hún aukna athygli sem kveikir á óþekktartakkanum á drengnum. Húsmóðirin hefur því staðið í ströngu undanfarið og fundið illilega fyrir því hvernig ástandið væri nú ef hún þyrfti að standa ein í því að siða börnin, hreinsa upp ælu, þvo þvott, elda mat og allt hitt sem einhvernveginn gerist eða gerist ekki innan veggja heimilisins. Það verður því fegin húsmóðir sem sér á eftir stjörnulögfræðingnum aftur í vinnu - fullviss um að hann hafi smá aukreitisorku til að sinna heimilisstörfum þegar heim er komið.

1 sagt:

Blogger inga hanna sagði...

Láttu mig þekkja þetta :)

20/3/06 13:40  

Skrifa ummæli

<< Home