Sátt
Húsmóðirin er óðum að taka Glitni í sátt. Var í upphafi frekar ósátt við nafnið og fannst rauði liturinn alltof æpandi. Gamla nafnið var einhvernveginni miklu betra og heimilislegra. Svo rataði diskurinn í spilarann og allt varð gott. Nú syngur húsmóðirin með Bubba, Stebba og Ragnheiði lögin sem hana langaði alltaf að eiga en vissi það ekki fyrr en hún eignaðist þau. Glitnir er góður og húsmóðirin tekur ofan fyrir B. Ármannssyni & Co. fyrir markaðsstunt ársins.

5 sagt:
Ég var ósátt líka til að byrja með en svo fékk ég diskinn og syng með líka. Ég er greinilega auðveld bráð fyrir markaðsmógúlana :S
Lagið með Bubba er yndislegt en síðan þarf ég alltaf að lækka þegar Sálin byrjar. Annars hefur nágranninn í kjallaranum greinilega ákveðið að hvíla armæðulög Johnny Cash í bili því þaðan barst ástarsöngur Ragnheiðar Gröndal í fyrrakvöld! Þessu átti ég nú ekki von á úr þeirri áttinni ...
diskurinn virkaði ekki í tölvunni minni, svo ég er enn ósátt...
Inga Hanna: setja diskinn í bílinn!
fínt að hafa hann í bílnum... ef ég hefði spilara í ofurkagganum!
Skrifa ummæli
<< Home