Blóðgjöf
Húsmóðirin tók ákvörðun um að gerast blóðgjafi. Í því skyni var skundað inn í hreint ótrúlegt farartæki sem þá stundina stóð fyrir utan Odda. Þar þurfti hún að lýsa því yfir að hafa aldrei stundað vændi né sprautað sig með fíkniefnum og svona sitthvað fleira sem skiptir víst máli þegar kemur að því að gerast blóðgjafi. Þá lét hún af hendi nokkra blóðdropa til prufu. Innan 14 daga verður ljóst hvort húsmóðirin er heppilegur blóðgjafi eður ei.
Það sem er sérstaklega skemmtilegt við þessa framkvæmd húsmóðurinnar er að ákvörðunin um að gerast blóðgjafi var tekin fyrir u.þ.b. 4 árum. Það hefur bara tekið þetta langan tíma að rata inn í Blóðbanka. Nú vonast húsmóðirin hins vegar til að hún geti vanið komur sínar reglulega í þennan skemmtilega banka og ávaxtað skátapundið með því að láta gott af sér leiða. Hvetur hún lesendur til að gera slíkt hið sama.

2 sagt:
Gott hjá þér.
Ég gekk einu sinni svona á undan með góðu fordæmi og lét örfáa dropa af hendi. Fékk seinna bréf sem sagði (efnislega) - halló!! er ekkert blóð í þér?? farðu til læknis!!!
Hef bara látið þetta eiga sig síðan.
Þú gætir nú orðið svolítið flott á Sunset Boulevard!!!
Þetta komment frá Ingu Hönnu hér að ofan er frábært; ég hló mjög mikið, svo mikið að sonur minn 8 mánaða varð eiginlega hræddur.
Skrifa ummæli
<< Home