Mission: Hasarkroppar
Húsmóðirin er búin að finna sér mission. Hún og nánasta samstarfskona hennar hafa tekið ákvörðun um að í sumar verði þær orðnar hasarkroppar. Til aðstoðar hafa þær fengið Mörtu Ernstdóttur (þessi sem sést hlaupandi hvar sem maður drepur niður fæti í bænum) sem mun píska þær áfram tvisvar í viku fram á sumar. Að auki munu þær stunda tækjasal íþróttahúss háskólans og æfa sig í að gera armbeygjur a´la Íþróttaálfurinn. Slíkar armbeygjur eru nokkuð snúnar en í þeim felst að lyfta sér nægjanlega upp úr beygjunni til að hægt sé að klappa saman höndum áður en næsta beygja tekur við. Húsmóðirin er ágætlega stödd í armbeygjulistinni og getur gert eina og hálfa Íþróttaálfsarmbeygju. Samstarfskonan þarf hins vegar að æfa sig aðeins meira - hún endaði flöt á maganum þegar síðast var gerð tilraun til klapps í miðri armbeygju (sjúkket að hún er ekki með silikon því pokarnir hefðu pottþétt sprungið). Húsmóðirin og samstarfskonan eru búnar að uppgötva keppnismanneskjuna í sér þannig að þær verða eflaust farnar að gera armbeygjur á annarri fyrr en varir.
Það eru því vinsamleg tilmæli til velunnarra húsmóðurinnar að vara sig í Nauthólsvíkinni í sumar. Það verða tveir hasarkroppar þar á ferð í góða veðrinu!

4 sagt:
Mikið afskaplega er ég fegin að vera flutt til Selfoss; get bara unað mér hér í friði með restina af óléttuspikinu ;)
Ég hefði verið til í að sjá þessa hálfu Íþróttaálfsarmbeygju.
Takk fyrir að vara mig við. Við getum kannski komið í kapp næsta sumar, ég á hjóli en þú hlaupandi ... eða nei, þú myndir vinna mig eins og skot. Mér finnst líka miklu betra að vera bara ein í friði, heldur en að sitja uppi með slagtog hasarkropps.
góðar :)
Skrifa ummæli
<< Home