þriðjudagur, mars 24, 2009

Prinsessudrasl

Húsmóðirin er að horfa á draslið í prinsessuherberginu og er að spá í hvort hún eigi að láta verða af hótunum um að ná í skóflu og moka öllu beint út í tunnu! Það sést varla í gólfið fyrir búningum, böngsum, dúkkum, litum og fötum úr skúffunum. Sú stutta hefur nefnilega tekið upp á því að deila fötunum sínum með böngsunum og dúkkunum. Voða krúttlegt í smá stund en gamanið kárnar þegar hún sjálf finnur engin föt að fara í því þau eru úti um allt á dúkkum og félögum þeirra böngsunum. Svo hafnar hún algerlega nýjum fötum og vil helst vera í of stuttum leggings. Fer ekki út í sokka-umræðuna, hún er efni í alveg nýtt blogg.
Spurning um að gera eina tilraun til að taka til og sjá hvort hún hættir að hvolfa úr körfunum sínum á gólfið. Það má í það minnsta halda í vonina.

3 sagt:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Mín er enn í þessum gír. Dúkkurnar og draslið gengur fyrir hjá henni :=)
Þannig að þú verður að bíta á jaxlinn í nokkur ár í viðbót....
Kv Ástrún

24/3/09 12:08  
Blogger inga hanna sagði...

ég þurfti einusinni að standa við svona hótun um að setja í svartan poka og henda - þórir og bríet litu bara hvort á annað og sammæltust um að þau væru hvort eð er hætt að leika með þetta!

26/3/09 12:57  
Anonymous Nafnlaus sagði...

æi, fáðu þér bara smá rauðvín í glas og settu góðan DVD í tækið … þrif á barnaherbergjum er tilgangslaus

27/3/09 14:17  

Skrifa ummæli

<< Home