föstudagur, mars 27, 2009

Landsfundur

Húsmóðirin sat með mörgum mektarkonum til borðs á landsfundi í dag. Tvær þeirra stóðu þó uppúr. Húsmóðurinni þótti einstaklega skemmtilegt að fá að sitja með og spjalla við þær Elínu Pálmadóttur og Ragnhildi Helgadóttur. Tvær kjarnakonur sem eru ennþá, þrátt fyrir töluvert háan aldur, með sterkar skoðanir á mönnum og málefnum og eru sko ekki í vandræðum með að koma þeim skoðunum á framfæri.
Það var þó ekki félagsskapurinn einn sem gerði daginn góðan. Húsmóðurinni leið eins og hún væri að taka þátt í einhverju sem virkilega skiptir máli fyrir okkur öll og naut sín í botn. Svo sást hún líka í kvöldfréttunum í sjónvarpinu og ef MJÖG vel er gáð á forsíðu Morgunblaðsins í morgun.
Þetta verður góð helgi í Laugardalshöll.