Mánudagsmatur
Húsmóðirin nennti ekki í búð í dag. Því þurfti að elda úr því sem til var. Í frysti fundust úrbeinuð kjúklingalæri. Í ísskáp fundust laukur, pestó og gulrætur og í búrskáp sæt kartafla. Ein dós af tómötum, hvítlaukur og hvítvín rataði með þessu öllu ofan í pott og kraumar nú á eldavélinni bragðbætt með sjávarsalti og svörtum pipar. Speltbollurnar komnar á borðið og spaghetti bíður eftir því að komast ofaní pott. Þangað fer það þegar stjörnulögfræðingurinn kemur heim með drenginn úr tónlistarskólanum.
Svona eru mánudagskvöld stundum hjá húsmóðurinni í austurbænum þegar hún nennir ekki í búð.
Svona eru mánudagskvöld stundum hjá húsmóðurinni í austurbænum þegar hún nennir ekki í búð.

2 sagt:
og á morgun fer hún út að borða... inni ;)
nice mánudagskvöld og svo er frúin byrjuð að blogga aftur!
me like :-)
Skrifa ummæli
<< Home