mánudagur, mars 30, 2009

Konurnar sem sátu

Helgin var góð og gríðarlega skemmtileg. Húsmóðirin skundaði á landsfund Sjálfstæðisflokksins í fyrsta sinn á ævinni og sér nú að hún hefur verið að missa af miklu. Það var virkilega gaman að taka þátt í líflegum umræðum og sú mikla breidd sem býr í flokknum er nú í fyrsta sinn húsmóðurinni ljós.
Mikil umræða hefur sprottið upp vegna ræðu fyrrverandi formanns flokksins. Húsmóðirin hefur aldrei verið sérlega mikil Davíðs-kona en nú er hún sannfærð um að karlinn sé endanlega búinn að missa það. Ræða hans var algerlega óviðeigandi og hefði betur átt heima sem skemmtiatriði á hófinu á laugardagskvöldið. Þegar ræðunni lauk stóðu flestir fundargestir úr sætum og fögnuðu Davíð. Megnið af þeim sem sátu við sama borð og húsmóðirin sáttu þó sem fastast með hendur í skauti. Okkur var ekki hlátur í huga og eftir á að hyggja hefðum við átt að ganga úr salnum. Davíð gerði, með ræðu sinni, vinstrimönnum mikinn greiða en Sjálfstæðisflokknum um leið mikinn óleik. Þessi ræða var óviðeigandi og í því samhengi sem hún var flutt var hún ekki einu sinni fyndin. Davíð á ekki lengur erindi upp á dekk og ætti því að halda sig þaðan.
Að öðru leyti var helgin góð. Nýji formaðurinn fínn og varaformaðurinn ennþá betri. Þetta var gaman og aldrei að vita nema húsmóðirin geri meira svona gaman í framtíðinni.

1 sagt:

Anonymous Lísa sagði...

Þú ert ein af mínum uppáhalds Sjálfstæðismönnum/konum! Ánægð með hvað þú varst á góðu borði.

Hefði þó viljað sjá Flokkinn taka afstöðu til ESB. Finnst tvöföld þjóðaratkvæðagreiðsla bara vitleysa.

ps. Hver hleypti manngreyinu upp í pontu? Ég bara skil þetta engan veginn.

30/3/09 16:39  

Skrifa ummæli

<< Home