Góð innihátíð
Húsmóðirin er mjög sátt við innihátíðina í ár. Laugardagurinn fór í hjólatúr krílafjölskyldunnar. Drengurinn hjólaði með hjálpardekkin alla leið í Nauthólsvík og tilbaka til ömmu í Kvistó þar sem hann fékk ís fyrir erfiðið. Heima biðu svo nauta rib-eye steikur sem krílin borðuðu bæði með bestu lyst og sú stutta bað um "meija" eftir að hafa torgað heilli steik.
Á sunnudag barst krílunum liðsauki en skáldkonan úr vesturbænum og sonur hennar heiðruðu innihátíðina með nærveru sinni. Fengu þau amerískar vöfflur úr pakka en ektra rjóma með. Að kvöldi sunnudags brugðu krílin og foreldrarnir undir sig betri fætinum og skunduðu á veitingastað í miðbænum. Á heimleið var komið við á myndbandaleigu og sú stutta átti stórleik þar. Byrjaði á að tæma heila hillu af gamaldags vhs-spóluhulstrum sem hún raðaði upp í turn. Miklu aðgengilegra þannig. Þá fann hún tvær dvd myndir sem hún hélt á í sitthvorri hönd og hljóp um alllt veifandi þeim út í loftið. Húsmóðirin var ekki lengi að ná þeim af henni þegar hún sá titilinn á annarri myndinni. "Amy´s orgasm" er ekki alveg það sem 18 mánaða skottur eiga að hlaupa um með, jafnvel þótt þær séu Von Brussland.
Mánudagurinn hófst með áhorfi á "Sky-high" sem Skjárinn veitti inn í stofu. Eftir miklar ofurhetjupælingar var drengurinn sannfærður um að hann bjyggi yfir ofurkröftum. "Sjáðu mamma, ég hef ofurkrafta. Ég getur lyft heilum stól," sagði hann með TripTrap í fanginu. Miklir ofurkraftar þar. Húsdýragarðurinn tók því næst á móti krílafjölskyldunni þar sem nautinu var klappað en sú stutta kallaði öll dýrin "bí bí" og vildi kyssa þau flest. Dagurinn endaði svo í pönnsum hjá afa og ömmu í Kjaló.
Húsmóðirin er sannfærð um að betri innhátíðardagskrá er vanfundin.

3 sagt:
innihátíðir rokka :)
Við Skírnir þökkum fyrir okkur. Þetta var afbragðs innihátíð.
Verið ávallt velkomin!
Skrifa ummæli
<< Home