fimmtudagur, ágúst 03, 2006

Innipúkar

Húsmóðrin og hyski hennar hefur tekið ákvörðun um að vera innipúkar um verslunarmannahelgina. Til boða stóð að fara í sumarbústað en ákvörðun um að vera heima í rigningunni var tekin húsmóðurinni til töluverðrar ánægju. Það er nefnilega hvergi betra að vera um verslunarmannahelgi en í Reykjavík. Fámenni og lítil umferð. Hægt að fara í sund án þess að troða niður mann og annan í baráttu um sturtur og á veitingastöðum er lítið mál að fá borð á besta stað. Svo er húsmóðirin þá laus við stress sem fylgir því að pakka niður flíkum og rúmfötum fyrir allt hyskið, ekki þarf að skipuleggja matseðilinn frá morgni til kvölds þrjá daga fram í tímann og bakið kvartar ekki yfir setu í bíl. Góð ákvörðun að vera heima...

3 sagt:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Þegar ég var Reykvíkingur þá tók ég einmitt þessa sömu ákvörðun og þú; yndislegt að vera í borginni þegar allar fyllibytturnar yfirgefa hana.

Mér finnst orðið hyski alltof neikvætt fyrir þín fallegu börn og eiginmann, áttu ekki eitthvað betra? ;)

DJ Ásmundur er annars í stuði þessa stundina og nú er í spilaranum Roland Gift ásamt félögum sínum í Fine Young Cannibals. Tónleikarnir í Laugardalshöll eitt sumarkvöld á síðustu öld voru tær snilld.

6/8/06 22:24  
Blogger hdb sagði...

Iss, þú þekkir bara ekki nógu vel uppruna orðsins hyski. Hyski þýðir einfaldlega það fólk sem býr undir sama þaki eða í sama húsi en hyski er dregið af orðinu hús. Gamalt og gott orð sem húsmóðirin hyggst nota áfram!

7/8/06 11:54  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Skák og mát ;)

8/8/06 15:27  

Skrifa ummæli

<< Home