Pressa
Stjörnulögfræðingurinn tilkynnti drengnum í morgun að hann væri á leiðinni til Spánar eftir tvær vikur. Þá er það semsagt orðið opinbert: Krílafjölskyldan ætlar að skella sér í sólina með stórfjölskyldunni af Kjalarlandsslektinu. Þetta hafði reyndar legið í loftinu í nokkurn tíma en nú þegar heimilisfaðirinn hefur tekið ákvörðun verður væntanlega ekki aftur snúið. Reyndar er ekki búið að kaupa ferðina en það gerist í rólegheitum næstu daga. Rólegheit í þessu sem öðru hjá krílafjölskyldunni. En þessi ákvörðun gerir það að verkum að nú er húsmóðirin undir gríðarlegri pressu að klára ritgerðina áður en haldið verður úr landi. Hún hefur því núna nákvæmlega tvær vikur til að leggja lokahönd á meistaraverkið. Það verður því sennilega unnið dag og nótt svo hægt sé að slappa af í sólinni. Reyndar hefur húsmóðirin alltaf unnið vel undir pressu þannig að þetta er bara hið besta mál. Og svo verður ógeðslega gott að liggja á ströndinni og maka á sig sólaráburði á meðan haustkuldinn skellur á Frónbúum.

3 sagt:
Kvikindi!
En ég er gífurlega ánægð fyrir þína hönd. Passaðu bara að borða ekki puttana af næstu 2 vikur ;)
Þetta hljómar dásamlega!
til hamingju!
þú rúllar þessu auðvitað upp á no time.
maður þekkir sitt heimafólk.
Skrifa ummæli
<< Home