þriðjudagur, apríl 18, 2006

5 ósýnileg skref

Húsmóðirin eyddi hluta úr öðrum páskadegi með drengnum á slysavarðsstofunni. Þar fékk hann blátt alvöru töfralím sem er notað til að líma saman svona stráka eftir að hafa kynnt sig með fullu nafni, tekið í höndina á lækninum og skýrt skilmerkilga frá því hvernig slysið vildi til. Á meðan húsmóðirin og drengurinn voru önnum kafin á slysavarðsstofunni tók sú stutta sig til og gekk 5 skref hjálparlaust. Svona er nú að eiga tvö börn - ekki hægt að taka þátt í öllu með þeim báðum.

2 sagt:

Blogger inga hanna sagði...

til hamingju með stelpuna - og vona að stráknum batni vel :)

20/4/06 10:35  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hvað kom eiginlega fyrir drenginn? Skil ekki svona dularfullar færslur ;) Til hamingju með skrefin fimm og gleðilegt sumar!

20/4/06 14:39  

Skrifa ummæli

<< Home