sunnudagur, apríl 16, 2006

Gleðilega páska

Húsmóðirin óskar landsmönnum til sjávar og sveita gleðilegra páska. Fjölskyldan hefur haft það einstaklega gott um páskana og slakað vel á. Páskaeggin fengu svo að kenna á því í morgun og gaf sú stutta bróður sínum ekkert eftir í súkkulaðiáti. Húsmóðirin endaði á að fjarlægja allt súkkulaði úr augsýn en sú stutta hætti ekki að segja "mei mei". Það verður beðið fram að jólum með að gefa henni súkkulaði aftur.

Systir húsmóðurinnar mætti með mannauðinn sinn í páskamatinn. Allir borðuðu kalkún og meðlæti og átu á sig gat. Nú sitja húsmóðirin og stjörnulögfræðingurinn fyrir framan sitthvora tölvuna, hann að vinna, hún að svíkjast um að læra. Maður getur nú ekki slappað af alla páskana...

1 sagt:

Blogger Ragnheidur sagði...

Já takk fyrir páskamáltíðina, hún var ljómandi góð. Ég skil hnátuna ansi vel að vilja meira súkkulaði. ;)

17/4/06 10:36  

Skrifa ummæli

<< Home