Gríðarleg vonbrigði
Húsmóðirin varð fyrir töluverðu áfalli við sjónvarpsgláp í gærkvöld. Á dagskrá var hinn mjög svo áhugaverði (svo ekki sé talað um spennandi) þáttur Project Runway. Í gær voru fjórir keppendur eftir og fengu þeir það hlutverk að hanna kjól fyrir íðilfagra sjónvarpskonu sem var á leið á Grammy-verðlaunahátíðina. Út úr tárum, brosum og saumsporum keppenda komu að lokum fjórir kjólar sem dómararnir kepptust síðan við að rakka niður. Skemmst er frá því að segja að ofurkrúttulegi homminn með glossið, hann Austin Scarlett, var sendur heim og Wendy með röndótta hárið sem allir hata vann áskorunina! Nú skal húsmóðirin alveg viðurkenna að kjóllinn hennar Wendy var aðeins meira viðeigandi fyrir tilefnið og Austin hefði alveg mátt hemja sig í silkislæðunum og fjólubláa litnum en þetta var samt áfall. Húsmóðirin hélt nefnilega ákaft með Austin og var búin að bóka það að hann myndi vinna þessa keppni. Sannfæringin um að Austin Scarlett eigi eftir að spjara sig í tískuheiminum þrátt fyrir þessi úrslit bætti þó ástandið örlítið og vonandi kemur að því að spurningunni "Who are you wearing?" sem iðulega er kastað inn á rauða dregilinn verði einhvern daginn svarað "Austin Scarlett".

3 sagt:
Gæti ekki verið meira sammála. Hélt alltaf með Austin en hann á örugglega eftir að spjara sig. Og við Wendy vil ég bara segja tvennt: "Low, low ..."
WTH is Autin og Wendy? Ég þarf greinilega að fara að láta tengja hjá mér sjónvarpið hér fyrir austan. Er Palli að brillera í RÚV-húsinu? Annars er ágætt að vera laus við þennan tímaþjóf ;)
Austin var allavega meira spennandi karakter en Wendy...
Skrifa ummæli
<< Home