Survivor - Oddi
Húsmóðirin hefur undanfarnar vikur tekið þátt í allsvakalegum Survivor-leik. Þátttakendur eru allir egóistar og öllum finnst þeirra skoðun sú eina rétta. Leikurinn gengur svo út á að koma sinni skoðun í gegn og fá hópinn til að samþykkja niðurstöðuna sem hina einu réttu. Leikurinn er flókinn, stefnumiðuð bandalög hafa myndast og óvinir orðið til. Undir það síðasta hefur þó reynst nauðsynlegt að sætta öll ágreiningsmál til að ná markmiðinu. Hópurinn þarf að skila sameiginlegri niðurstöðu og það er öllum í hag að hún sé sett fram á sem skýrastan hátt. Undir lokin sættast allir en það skrýtna við þennan leik að enginn einn sigurvegari stendur eftir - hópurinn er sigurvegarinn.
Svona er að vinna hópvinnuverkefni í Viðskipta- og hagfræðideild HÍ.

0 sagt:
Skrifa ummæli
<< Home