Nýárskveðja
Húsmóðirin fékk senda nýárskveðju frá knattspyrnumanninum, leikaranum, borgarfulltrúanum, flugmanninum, alþingismanninum og myndlistamanninum. Drengirnir verða mannalegri með hverju árinu sem líður og finnst húsmóðurinn gaman að fá að fylgjast svona með þeim - en það þarf svosem ekki nýárskveðju til, þeir eru flestir ansi sýnilegir svona dags daglega. Það sem húsmóðirin veltir hins vegar fyrir sér er hversu mörg svona nýárskort drengirnir senda eiginlega út. Hefur hún þá grunaða um að senda út fleiri hundruð kort og jafnvel til fólks sem þeir hafa hvorki heyrt né séð í áratug eða meira. Reyndar talaði húsmóðirin við leikarann í síma í haust en það var í tengslum við framboð borgarfulltrúans svo að það er nú varla að marka.
Þeir sem fengu líka svona kort eru vinsamlegast beðnir um að skrifa komment og láta vita - bara svona til að svala forvitni húsmóðurinnar.

4 sagt:
buhu - mér líður eins og ég sé útundan...
Þú ert í hópi útvaldra Helga Dögg....ekkert að draga úr því :) Ps. ég fékk heldur ekkert kort
Er hann ekki varaborgarfulltrúi???
jú það er alveg rétt - minn feill!
Skrifa ummæli
<< Home