sunnudagur, janúar 22, 2006

Ritstuldur

Húsmóðirin er hneyksluð á Stundinni okkar. Hneyksluð á því að það sé hreinlega gert ráð fyrir því að börn þekki ekki eina frægustu barnfóstru allra tíma og hafi aldrei séð kvikmyndina um hana þótt hún sé komin til ára sinna. Hún er ekki síður hneyksluð á því að framleiðendur og handritshöfundar leyfi sér að stela atriðum úr frægri Disney-mynd sem margir kunna hreinlega utanað. Húsmóðirin lýsir frati á handritshöfunda fyrir hugmyndaleysi og glæpsamlega hegðun. Svo er þetta bara lélegt. Væri ekki skárra að sýna Mary Poppins frekar en að leggjast svona lágt?

4 sagt:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Grafa upp email hjá höfundi og senda kauða/frauku línu - med de samme

22/1/06 19:39  
Blogger Ragnheidur sagði...

Nú langar mig til að sjá þessa skömm. Hvenær er Stundin endursýnd?

23/1/06 15:11  
Blogger hdb sagði...

Þú getur séð þetta inni á ruv.is - þar eru allir þættir tvær eða þrjár vikur aftur í tímann.

24/1/06 08:42  
Blogger Ragnheidur sagði...

Ég finn þetta ekki - er brjóstaþokan enn svona mikil eða er þetta e-ð vandfundið?

24/1/06 19:12  

Skrifa ummæli

<< Home