Kvef og þreyta
hrjáir mannskapinn þessa dagana. Ilmkjarnaolíur hafa haldið öllum meiriháttar sýkingum í burtu en hor lekur úr hverri nös. Sökum slíms og stíflu sefur smáfólkið ekki sem skyldi, ergo: húsmóðirin sefur ekki sem skyldi. Það er því mjög þreytt húsmóðir sem situr á lesstofu og starir á tölvuna. Spurning um að loka augunum aðeins, bara í smátíma, svona rétt til að finna hvernig tilfinningin er, rétt í augnablik...

5 sagt:
O já, láttu það bara eftir þér... zzzzzz
Skírnir átti að fara í augnaðgerð á morgun en fær ekki að fara því hann er með hálsbólgu. Sjálf er ég með svima og beinverki. Annars er ég mjög hamingjusöm. Drengurinn er svo yndislegur og ég er komin á rétta braut með fyrirlesturinn sem ég á að flytja í Þjóðleikhúskjallaranum á sunnudaginn.
hvaða fyrirlestur er kb-kvendið með á sunnudaginn???
úppsss.....fyrirgefðu Helga Dögg ætlaði að segja við þig vork vork
Held að ég sé bara lasin en ekki þreytt - eða bara bæði. Þannig að við KB-kvendið erum sennilega bara í svipuðum málum. Nema ég er ekki að fara að halda fyrirlestur sem er að mig minnir um Svövu Jakobsdóttur ;)
Skrifa ummæli
<< Home