nýtt ár - nýjir staðir
Húsmóðirin óskar landsmönnum til sjávar og sveita farsældar á komandi ári. Sjálf er hún staðráðin í að vera duglegri en andsk..... og vinna þrekvirki á námssviðinu.
Sú stutta hefur skólagöngu sína í dag, ekki seinna vænna enda alveg að verða eins árs.
Drengurinn vill ólmur komast í íþróttaskóla á þessari önn en er ekki alveg viss um að íþróttaskólinn hjá Víkingi sé nógu skemmtilegur - það er nefnilega bara fótbolti þar að hans sögn. Maður verður nú að fá að príla í rimlum og hoppa í hringjum líka þegar maður er bara rétt að verða fjögurra ára.
Þá er bara að baða þá stuttu svo hún verði fín í skólanum á eftir...

3 sagt:
Ótrúlegt að barn sem var bumba fyrir augnabliki sé að verða ársgamalt!! Til hamingju :)
Takk, takk! Þetta er alveg með ólíkindum. Ennþá ótrúlegra finnst mér að barn sem var bumba fyrir rétt rúmu augnabliki sé að verða fjögurra ára (en þú kannast nú við þá tilfinningu).
Vááá......nær eitt ár síðan, Helga Dögg, tíminn líður hratt á gervihnattaröld. Komdu bara með guttann í íþróttaskólann hjá Fylki - þar er gert út á að láta börnin príla og hoppa - mjög skemmtilegt :)
Skrifa ummæli
<< Home