Stelpuveikindi
Stelpurnar á heimilinu eru búnar að vera lasnar. Sú yngri öllu lasnari en mamma hennar en báðar með hálsbólgu, hósta og kvef. Sú stutta með hita, sú stærri ekki. Fjarvinnubúnaður hefur reynst vel í tvo daga en þó hefur reynst nauðsynlegt að aka upp á Höfða síðdegis báða dagana og sinna störfum sem erifiðara er að vinna úr Ofanleitinu.
Amma í Kjaló reddar málunum fyrir hádegi á morgun en eftir hádegi verður fjarvinnubúnaður að duga. Eins gott að hálsbólgan í frúnni versni ekki og endi með hita. Alveg nógu mikið sem á eftir að gera fyrir jól þótt veikindi bætist ekki við.

1 sagt:
Sama hér!
Farðu vel með þig, þessi pest er alger vibbi, svo lúmsk. Þegar maður loksins heldur að allt sé OK og fer út þá verður maður bara veikari.
Pestir eru bara ekki fyrir nútímafólk, svo einfalt er það nú. Maður má ekkert vera að því að standa í svona rugli ;)
Skrifa ummæli
<< Home