Loforðin að engu
Húsmóðirin sem ætlaði engin jólakort að senda í ár er búin að sitja við að skrifa utaná umslög í allt kvöld. Afgreiddi reyndar kortin sjálf á fljótlegri hátt. En það er búið að vera gaman að skrifa á umslögin. Kveikti á jólailmkerti sem tengdamamma kom með frá Bandaríkjunum, stillti á LéttBylgjuna með jólalögin, drakk te og skrifaði af miklum móð.
Það var kannski bara vitleysa eftir allt saman að ælta að sleppa jólakortunum.
Það var kannski bara vitleysa eftir allt saman að ælta að sleppa jólakortunum.

1 sagt:
Takk fyrir kortið :)
Ég sendi öllum hlýjar kveðjur, en læt kortin liggja milli hluta þetta árið í það minnsta.
Gleðileg jól!
Skrifa ummæli
<< Home