föstudagur, nóvember 10, 2006

minidv, dvd eða harður diskur

Þessu er húsmóðirin að velta fyrir sér þessa dagana. Er samt eiginlega komin að þeirri niðurstöðu að minidv sé málið. Langbesti endingartíminn og minnst vesen. Strákurinn í Sony center hitti alveg naglann á höfuðið þegar hann benti á að ef maður tæki upp á minidv þá væri hægt að sýna myndir af rollingunum eftir 20 til 30 ár í brúðkaupinu þeirra, dvd diskurinn væri ónýtur og líklegt að harða drifið í tölvunni verði löngu komið á haugana. Þannig að lendingin verður sennilega minidv og þá er þetta bara spurning um megapixla, flögustærð og hversu nett vélin sjálf er. Húsmóðirin er farin að hallast að því að Sony sé málið en á reyndar alveg eftir að skoða JVC vélarnar - fer í það eftir hádegið. En það eru allavega miklar líkur á því að krílin verði mynduð í bak og fyrir þessi jól. Eins gott að þau sýni á sér sparihliðina - annars á hin hliðin eftir að koma í bakið á þeim þegar þau gifta sig. Múhaha...

5 sagt:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Sæl vinkona - mikið er ég ánægð að þú sért að pæla í þessu - þarf nefnilega að fjárfesta sjálf í einhverjum græjum fyrr en seinna - heyri í þér eftir helgi hvaða kostur er bestur :)veislustjórinn

10/11/06 14:58  
Blogger Ragnheidur sagði...

Mæli með Sony ... en hef reyndar ekki reynslu af öðru en er mjög ánægð með okkar græju. Hér er markvisst verið að safna vandræðalegum mómentum á filmu til að sýna í fermingunni. ;)

11/11/06 12:54  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Vesturlandabúar og nútíminn, oh boy, oh boy. Eftir nokkur ár líturðu til baka með þetta ónýta minidv í höndunum og hugsar: Hvað var ég að pæla? Og sölumaðurinn í Sony mun alltaf brosa í kampinn í hvert sinn sem hann hugsar til þess þegar hann plataði þessari græju inn á húsmóðurina í Austurbænum!

Kveðja frá einni sem er búin að hlusta á 17 ára gamlan CD með Deacon Blue í allan dag. BTW, það er allt í lagi með diskinn, ekki ein rispa.

11/11/06 13:20  
Blogger hdb sagði...

Búðarkeyptur CD er ekki það sama og heimaskrifaður DVD Libook góð!!!

12/11/06 14:30  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég sé þetta bara núna í nýju ljósi ;)

13/11/06 19:47  

Skrifa ummæli

<< Home