mánudagur, nóvember 13, 2006

Fyrsti dagurinn

Þá er að kveldi kominn fyrsti dagur húsmóðurinnar sem vinnandi konu eftir 3ja ára námshlé. Dagurinn gekk stóráfallalaust fyrir sig fyrir utan að tölvufyrirtækið gat ekki haft tölvu tilbúna fyrir nýja starfsmanninn. Þeim til varnar töldu þeir tölvuna tilbúna en þegar til kastana koma þá var eitthvað pikkles í stýrikerfinu og því þurfti að setja vélina upp aftur. En þegar hún var komin í dokkuna um klukkan þrjú síðdegis gekk allt eins og í sögu. En sökum tölvuleysis þá verður sennilega meira gert af viti á morgun.

Meðal þess sem húsmóðurinni líst vel á í nýju vinnunni er mötuneytið. Hún hefur aldrei búið við þann lúxus að hafa mötuneyti í vinnunni og hlakkar hún til að borða ferskt salat og góðan mat á hverjum degi. Þá sér húsmóðirin fram á einfaldari eldamennsku í miðri viku þar sem börnin fá heitan mat í leikskólanum. Stjörnulögfræðingurinn verður bara að bíta í það súra að vera sá eini sem ekki fær heitan mat í hverju hádegi.

1 sagt:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Fall er fararheill ;)

Til hamingju með vinnuna og gangi þér ógó vel, eins og unglingarnir orða það.

14/11/06 10:55  

Skrifa ummæli

<< Home