sunnudagur, nóvember 19, 2006

Snjókast

Segja má að snjókast hafi riðið yfir Reykjavíkurborg. Húsmóðirin varð að sanna það að hún ætti besta jeppann í bænum og ók af stað til að koma flísfatnaði til aldraðs afa sem liggur og skelfur úr kulda á einu sjúkrahúsi bæjarins. Leiðangurinn gekk áfallalaust en eftir á að hyggja hefði húsmóðirin e.t.v. átt að bíða með leiðangurinn í nokkra klukkutíma. Ansi mikið af strönduðum bílum út um allt sem gerðu ekkert annað en að flækjast fyrir.
Eftir hádegislúrinn, sem húsmóðirin og prinsessan á heimilinu tóku saman, klæddi öll fjölskyldan sig í útigalla og arkaði út í snjóinn. Farið var í heilmikið snjókast en prinsessan átti í örlitlum erfiðleikum með að fóta sig í snjónum sem náði henni upp að mitti.
Það var bara gaman að leika sér í snjónum og fagnar húsmóðirin snjónum. Í það minnsta þar til hún þarf að komast í vinnuna í fyrramálið.

1 sagt:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Snjór? Búum við á sama landi?

Ég er ekki búin að fylgjast með fréttunum um helgina og í útópíunni Árborg er alltaf sól og blíða ;)

20/11/06 00:00  

Skrifa ummæli

<< Home