fimmtudagur, desember 15, 2005

Ein ég sit og sauma...

inní litlu húsi. Enginn kemur að sjá mig nema máfarnir sem sveima yfir gömlum pylsum á Verzló-planinu. Húsmóðirin er semsagt að sauma gardínur fyrir jólin og á eftir verða bakaðar og skreyttar piparkökur. Rás tvö fær að hljóma á meðan enda stórskemmtileg jólalög sem ráða þar ríkjum. Húsmóðirin tekur ofan fyrir rásar tvö mönnum að standa fyrir jólalagasamkeppni - nóg er nú komið af cover-útgáfum af gömlum jólalögum. Betra að láta semja ný. Aldrei að vita nema húsmóðirin semji jólalag þegar gardínusaumi lýkur.

4 sagt:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Ótrúlega flottar gardínurnar hjá þér. Sá dýrðina utanfrá er ég skundaði í Kringluna í jólainnkaup um helgina. Ég vildi að ég og saumavélar ættum skap saman, held mig við prjónana á meðan svo er ekki!!!

19/12/05 14:29  
Blogger hdb sagði...

Þær eru ennþá flottari innanfrá!!!!

19/12/05 21:34  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Verð að koma og sjá það!!!

20/12/05 14:58  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Vonandi siturðu ekki ein og saumar um jólin!

Jólakveðjur til þín og þinna,
Lísa, Ásmundur og börn

24/12/05 09:24  

Skrifa ummæli

<< Home