Eyrnasif
Sú stutta er aftur komin með eyrnabólgu húsmóðurinni til lítillar ánægju. Það er ekki gaman að vera 9 mánaða og pirraður í eyrum - ekkert hægt að gera nema væla og kúra í mömmufangi. Mömmunni finnst þetta heldur ekki gaman - vika í próf og alveg ástæða til að lesa vel fyrir það. En svona er þetta, húsmæður fá ekki að velja tímann sem eyrnabólgan lætur á sér kræla. Þær verða þá bara að lesa á kvöldin í staðinn...

7 sagt:
En leiðinlegt að heyra. Skírnir er heima rétt eins og í gær. Hann er slappur og gubbar. Dagmamman segir að hún Dagný Sól hafi líka verið veik fyrir helgi. Einmitt, Dagný Sól! Gat verið að hún smitaði son minn. Maður heyrir nú bara á nafninu hvers konar skaðræðisbarn þetta er. Annars hrópaði vinur Skírnis: Mamma skrímslis! þegar ég kom að sækja hann í síðustu viku. Skírnir/skrímsli ... þetta er ósköp svipað. Baráttukveður í prófum og veikindum.
Arnór frændi er sko alveg til í að passa litlu frænsskinnin sín eftir 16.des svo pabbi og mamma geti komist í einhvern jólaleiðangur!
Lavender, frú mín góð, lavender í bómull í eyrun!!!
Takk fyrir baráttukveðjur, góð húsráð og pössunarboð. Á eflaust eftir að nýta mér húsráðið og þiggja pössunarboðið.
þetta minnir mig nú á að gleðjast yfir hvað börnin eru orðin gömul ;)
Nei, heyrðu nú mig, hvar er bloggið, stelpa?
hey, er búin að vera að lesa fyrir próf. Blogga í kvöld eða á morgun.
Skrifa ummæli
<< Home