þriðjudagur, desember 13, 2005

Próf búið - næst: jól

Húsmóðirin blaðraði sig í gegnum próf í gær og getur nú farið að jólast. Piparkökubakstur á fimmtudag, tannhreinsun í fyrramálið. Svo er bara að redda sér einhverri spjör svo jólakötturinn fari ekki að banka uppá. Einhverjar gjafir úr búð og í pappír og þá mega jólin bara koma. Jólasveinarnir eru farnir að lauma gjöfum í skó og þá er þetta nú allt að koma.
Heilræði dagsins: Jólin koma þrátt fyrir að gólfið sé ekki sótthreinsað.

3 sagt:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Ritstjórnarpistillinn í jólablaði Húsa og híbýla var ansi góður. Þar var talað um að gera hlutina bara annað hvert ár, sleppa t.d. piparkökunum eitt árið fyrir laufabrauð og svoleiðis. Þar með er hægt að helminga stressið fyrir suma!!
Ég komst að því í fyrra að jólin koma þrátt fyrir að þú hafir ekki gert allt. Ég flutti t.d. inn á aðfangadag í fyrra og náði í fyrsta sinn á ævinni ekki að fara í jólabaðið, en viti menn, klukkan varð samt 6 og jólin komu!!!! Var samt soldið skrítið!!

13/12/05 12:46  
Blogger inga hanna sagði...

ég er að átta mig á því að ég hef engan tíma til að gera neitt af því sem þarf og barnaafmæli fyrir jól í þokkabót. á eftir að sjá útúr þeirri þoku.

15/12/05 12:56  
Blogger hdb sagði...

Þeirri þoku léttir um síðir - þetta reddast allt saman einhvern veginn :)

17/12/05 14:50  

Skrifa ummæli

<< Home