Próflokasprengingar
Húsmóðirin tók síðasta prófið í gær. Síðasta í það minnsta í bili. Um var að ræða heimapróf sem þreytt var á 13 klukkustundum "heima" í Odda. Á um það bil klukkutímafresti hristist húsið og skalf þar sem verkamenn voru í óða önn að sprengja upp Reykjavíkurklöppina svo hægt sé að byggja barinn fyrir hagfræðingana. Síðasta prófið var því tekið með stæl - sprengingar skuku svörin.
Svefn húsmóðurinnar var líka truflaður af sprengingum þótt verkamennirnir hafi fyrir löngu verið farnir heim. Eflaust sváfu þeir á sínu græna. Kannast lesendur við orðið "sprengingariða"???
Svefn húsmóðurinnar var líka truflaður af sprengingum þótt verkamennirnir hafi fyrir löngu verið farnir heim. Eflaust sváfu þeir á sínu græna. Kannast lesendur við orðið "sprengingariða"???

5 sagt:
Til hamingju með próflok. Best að skella sér í hagfræðina svo maður komist á þennan umrædda bar ;)
Sprengingariða er mér ókunn en Kengúran hefur nú oft valdið sjóriðu.
Til hamingju með að vera búin í prófum! Það er alltaf gaman. Ertu nú orðin viðskiptafræðingur? Ég er líka að fara að vinna fyrir Alþingi. Nei, það þýðir ekki að ég sé orðin þingmaður.
Ekki enn. Á ritgerðina eftir. Verð orðin viðskiptafræðingur í október :)
Vei, þá ætla ég alltaf að koma til þín með mín viðskipti. Þú verður viðskiptafræðingurinn minn og ég vonandi rithöfundurinn þinn. Ókei?
ókei!
Skrifa ummæli
<< Home